Um vef UMFB Hafðu samband
RSS:
Letur:
Útlit
Fréttir
select
   

Tvær stelpur frá Brasilíu til liðs við kvennalið BÍ/Bolungarvíkur
Í dag fengu tvær stelpur frá Brasilíu leikheimild með BÍ/Bolungarvík. Þær voru fengnar til að styrkja ungt lið m.fl.kvenna í sumar. Stelpurnar eru 23 og 24 ára gamlar og koma til landsins 14. maí.

Lesa


BÍ/Bolungarvík fær markmann
Meistaraflokkur kvenna
Nýstofnaður m.fl. kvenna hefur fengið lánaðan markmann fyrir sumarið. Kristín Hólm Geirsdóttir er 20 markmaður sem kemur frá Þór Akureyri. Þór lánar hana til BÍ/Bolungarvíkur í sumar og leikur hún sína fyrstu leiki um næstu helgi þegar liðið hefur leik í lengjubikarnum.

Lesa


Sigur á Fram í háspennuleik
Körfuknattleiksdeild
UMFB sigraði Fram í gær, 99-98, í háspennuleik þar sem úrslitin réðust á lokasekúndunni. Auðunn "Jordan" Einarsson var með stáltaugar undir lokin og tryggði sigurinn með 2 vítaskotum þegar 1,8 sekúndur voru eftir. Nánar má lesa um leikinn á síðu körfuknattleiksdeildarinnar.

Lesa


Sigur og tap á móti toppliðinu
Körfuknattleiksdeild
UMFB lék tvo leiki við Augnablik í 2. deild karla á helginni. Fyrir leikina trjóndi Augnablik efst og ósigrað í riðlinum. Það fór svo að lokum að þeir hlutu sitt fyrsta tap í vetur á móti Bolvíkingum en sluppu þó með sigur í seinni leiknum. Nánar má lesa um leikina á síðu körfuknattleiksdeildarinnar www.umfb-basketball.com

Lesa


Gleðileg jól
Ungmennafélag Bolungarvíkur óskar öllum félagsmönnum og stuðningsaðilum gleðilegra jóla og þakkar stuðninginn og samstarfið á árinu.

Lesa


UMFB gallar komnir
Þeir sem pöntuðu UMFB galla í haust geta sótt þá á fimmtudag. Vinsamlegast hafið samband jonnil[at]simnet.is varðandi greiðslu.
Þegar gallar eru greiddir er hægt að sækja þá á Þjóðólfsveg 7.


Lesa
Skráðar fréttir: 347 - Síða: 1 af 58